01desember

Spurning um að endurvekja bloggið aðeins...!!!

Síðasta færsla var í maí á þessu ári.......myndi ekki telja það góðan árangur hjá okkur verðandi hjónum !!! 



Spurning um að bæta kannski úr þessu og skrifa kannski stöku pistla hér inn annars lagið :)

Núna eru ekki NEMA 25 dagar í brúðkaup......!!!!!!!!!!!!!!!! OMG spennan er að magnast hér á bæ :) Erum á fullu í undirbúning.....enda ekkert smá sem þarf að spá og spekúlera þegar svona stór viðburður er annars vegar ! Svo er þetta of course á annan í jólum þannig það er ekkert auðvelt að redda hlutunum á síðustu stundu ef eitthvað gleymist, enda flest allt lokað!

Þess vegna geng ég með plan dagbók á mér og er sífellt að skrifa og skipuleggjast í henni ! og TO DO listinn fer stækkandi enda eru jólin auðvitað líka að bresta á .....ekki nema 23 dagar fólk...! :)
Við erum komin í þvílíkt jólaskap hér á bæ og búið að skreyta allt hátt og lágt.....finnst svo gott að vera búin að þvi :) Svo er búið að baka eina sort, lakkrísbitakökur og þær eru búnar!! þarf greinilega að gera tvöfalda uppskrift í viðbót !!
Það er búið að vera mikið veikindastúss hér á bæ, ælupestir og flensur hafa átt hug okkar allan undanfarið og núna liggur litli prinsinn minn með um 40 stiga hita við hliðina á mér að horfa á Söngvaborg... :( Vona að þetta sé síðasta pestin í bili...svo erfitt að standa í miklum veikindum. Svo er ekkert voða gaman að vera nýr starfsmaður á nýjum vinnustað og vera sífellt að biðja um veikindafrí......!! En það þýðir ekki að gráta það , bara dæla vítamínum í mannskapinn og hressa liðið við :)

En talandi um nýja vinnustaðinn þá er ég farinn að vinna hjá Símanum í reikningaþjónustu og líkar mjög vel :) Gulli er svo of course farinn í FH eins og allir vita og er að markmannsþjálfa með því. Svo það er nóg að gera hjá okkur familíunni. Krakkarnir eru ekkert smá sáttir á leikskólunum sínum og taka bæði miklum framförum þessa dagana! Gulli Orri er farinn að segja svo mörg ný orð allt í einu og Ester Ósk er alltaf að verða meiri og meiri krakki (og gelgja með því) ;) Signý María er svo flutt í Garðabæ og byrjuð í skóla þar og líkar vel ! Hún er alltaf meira og meira að detta í unglinginn...oh my ;) 
Við erum svo rík að eiga þau öll, svo heilbrigð og yndisleg !! Þau verða æði í brúðkaupinu og öll komin með svaka flott dress.......og auðvitað sitt hlutverk hvert. 

 

En jæja litli veiki stúfur er sofnaður hérna við hliðina á mér, ætla að færa hann inní mömmu rúm! Þar er best að kúra þegar maður er svona lasinn ! 

koma svo og commenta !! 
Væri gaman að sjá hvort einhver líti hér við ennþá !! 

Later fallega fólk 

01. desember 2009 klukkan 19:56
Hildur Einarsdóttir
5 athugasemdir
09maí

Prinsinn á Stelzagass er 1.árs í dag!!

Vá hvað tíminn líður!! Í dag er litli krúttkallinn okkar hann Gulli Orri 1.árs!!! Mér finnst ekki vera 1.ár síðan ég átti hann!! Man það allavega eins og það hafi gerst í gær. Ætli það sé ekki rétt að Time flies when your having fun!! ;)

Síðasta bumbumyndin :) 39.vikur rúmar.

Gulli Orri er án gríns hið fullkomna barn! Hann er svo þægur og góður og hefur alltaf verið! Fyrstu 6.mánuði líf síns grét barnið svo sjaldan að ég þurfti án gríns að athuga með nokkru sinnum hjá ljósmóður hvort það væri eðlilegt að barnið græti aldrei og þá meina ég ALDREI. Gat talið á annarri hendi hversu oft hann hafði grátið og þorði varla að segja frá því ......algjört draumabarn :) 


Nýfæddur prins :)

Ein síðan síðasta sumar :)

Ákveðnin er samt farin að færast yfir hann, enda á hann í baráttu við systur sína um dót og svona á hverjum degi og minn maður gefur sko ekkert eftir. Hvæsir bara og öskrar á systur sína ef hún er að taka af honum eitthvað sem hann er með ;) hehe. Svo er hann rosalega duglegur og var byrjaður að labba rétt um 10 mánaða aldurinn, þannig hann er farinn að hlaupa út um allt flottur á því :) 

Á röltinu úti í sólbaði.

Gulli Orri borðar allan mat og hann elskar að fá ís og stundum pínu sleikjósmakk hjá systur sinni!! Það er sko uppáhalds og minn byrjar alveg að sprikkla og öskra þegar hann sér einhvern borða ís nálægt sér haha :) 
Ég kenni afa hans um að hafa kynnt hann fyrir sætindunum ;) hehe. 





OH my þvílík bloggleti í gangi á þessu heimili.....síðasti pistill kom fyrir mánuði síðan!! Síðan þá hefur margt og mikið gengið á hér á Stelzagass! Hanna vinkona kom í heimsókn til okkar 6-16 apríl og var þar með fyrsti næturgesturinn á Stelzagass og leiddist okkur ekki að fá hana til okkar :) Krakkarnir voru svo glaðir að ég var alltaf í vandræðum með að halda þeim frammi á morgnanna til að koma í veg fyrir að þau myndu vekja Hönnu um 7-8 leytið alla morgna hehe. Ég missti t.d sjónar af Ester einn morguninn og þá var mín ekki lengi að troða sér uppí rúm til Hönnu með ískaldar tásurnar haha :) skemmtileg vakning þar á ferðinni! 
Hanna var rosa heppin með veður og fengum við sól flesta dagana :) Þannig það var mikið legið úti í sólinni og haft það kósý! Svo var að sjálfsögðu farið í verlsunarferð, það má ekki klikka á því ! 
Annars var þetta hin rólegasta heimsókn þannig séð.....bara kósýheit og knús :) Yndislegt alveg hreint! 


vinkonurnar :)

Stuttu á eftir Hönnu komu svo mamma og pabbi í heimsókn og þvílíkir fagnaðarfunir á flugvellinum í Zurich!! Hélt að Ester Ósk myndi bara tapa sér!!! Aldrei séð barnið svona hahaha! Hún hljóp ömmu sína og afa næstum um koll þegar hún stökk í fangið á þeim öskrandi af gleði :) Við vorum ekkert SMÁ ánægð að fá þau enda farin að sakna þeirra alltof mikið! 
Við áttum svo yndislega daga með þeim hérna úti, þau voru ekkert rosalega heppin með veður en fengu þó 2-3 sólardaga, annars var hlýtt en skýjað og svoldið rok........sem er frekar spes, því það er eiginlega aldrei rok hérna!! Þau hafa tekið það með frá Íslandi óvart haha ;)
Við fórum með þeim í verlsunarferðir og nutum þess alveg í botn að vera með ömmu og afa hjá okkur alveg út af fyrir okkur!! Gerist ekki betra en það :) 
Það var mikill söknuður í okkur þegar við kvöddum þau, en við huggum okkur við það að það eru ekki nema 22 dagar í að við komum til Íslanda í sumarfrí !! vúhú! 


Við verðum í íbúðinni okkar í sumar, en við þurfum aðeins að fínpússa pallinn og svona og svo verður hún sett á sölu þegar búið verður að klára samningsmál Gulla um framhaldið. Gulli er búin að fá að heyra frá liðinu hérna úti að það vilji halda honum lengur og svo erum við að heyra áhuga líka annarstaðar frá, t.d Skotlandi og Englandi......Svo það getur allt gerst í þessu :) Bara skemmtilegir og spennandi tímar framundan! 

Svo fyrir tveim dögum þá keyrði ég alein til Frankfurt (tekur 4 og hálfan tima hvora leið) til að sækja Signýju Maríu en hún var að koma í heimsókn til okkar og verður í 11 daga eða til 18 maí :) Aksturinn gekk ljómandi vel enda er maður soddan kjarnakvendi ;) hehe. 
Shit hvað sumir keyra samt SJÚKLEGA hratt.....en á sumum stöðum á autobananum í þýskalandi má keyra ótakmarkað hlýtur að vera því ég var kannski á 150 km hraða en það voru að koma bílar fram úr mér á klikkuðum hraða....sá þá bara þjóta fram hjá! úfff hvað ég myndi ekki meika að fara alveg svo hratt! 
Ég fékk samt nettar harðsperrur í rassinn og bakið eftir þetta.....hehe, enda ekkert spes að sitja svona lengi í bíl !
Það var þvílík gleði við völd þegar við Signý keyrðum uppað Stelzagass og ég hélt að Ester Ósk myndi gjörsamlega tapa sér haha, hún var svo rosalega spennt litla greyið. :) 
Við ætlum að hafa næstu daga bara kósý og í allskonar skemmtilegheitum með krakkana, en það á t.d að fara i dýragarðinn, vatnsrennibrautagarðinn, á ströndina, jafnvel í legoland og margt margt fleira :) Brjáluð dagskrá í gangi! Í dag er samt heiðskýrt og 25 stiga hiti úti þannig við ætlum að taka sundlaugina út á eftir og svo verður farið á leik hjá Gulla og þeim um 6 leytið í dag. Gulli getur ekki verið með samt því hann er meiddur í náranum :( Erum þvílíkt svekkt en maður getur víst ekki stjórnað öllu....vonandi verður hann bara orðinn góður fyrir næsta leik ! 
En jæja krílin eru komin í bikiní og tilbúin að fara út....bíða spennt eftir að ég hætti þessu pikki og hleypi þeim út í sólina ;) 



í gær þann 8 maí átti svo hann Gulli eldri okkar 15 ára edrú afmæli :) Til hamingju með það ástin mín. Ég elska þig meira en orð frá lýst :*

Eigið góðan dag öll sömul og við getum ekki beðið eftir að hitta ykkur öll á Íslandi í júní! 
1000 kossar og knúsar frá Stelzagass! :*

Ps. Búin að setja inn tvö ný myndaalbúm á facebook :)
09. maí 2009 klukkan 07:16
Hildur Einarsdóttir
7 athugasemdir
05apríl

Liechtenstein lífið heldur áfram......

Best að setja inn einn pistil eða svo :) 

Af okkur er allt flott að frétta! Það er rosalega gott að vera búin að endurheimta Gulla minn aftur, þó svo að ég hafi haft í nógu að snúast á meðan hann var í burtu :) Hann spilaði á móti Skotum eins og allir vita og gekk að mati konu sinnar alveg hreint ljómandi vel, leiðinlegt bara að hafa ekki fengið betri úrslit úr þessum leik.....en svona er bara fótboltinn! 

Vaduz var að keppa í gær og gerði jafntefli á heimavelli við lið sem er í 4.sæti, þannig það var bara ágætis árangur. Gulli var á bekknum en hann er líka með heiftarlega sýkingu í olboga :( Greyið er því bara bryðjandi sýklalyf og bólgueyðandi. 
En hann verður vonandi fljótur að hrista það af sér!! 

Hanna okkar er að koma á morgun og vá guð minn almáttugur hvað við hjónin erum spennt að fara og sækja hana á flugvöllinn!!!! Það verður geggjað að fá hana til okkar!! :) Svo á þriðjudaginn á "Litla" stóra stelpan okkar hún Ester Ósk afmæli, en hún verður 3 ára gömul.....takk fyrir!! Þannig það verður slegið upp veislu á þriðjudaginn fyrir prinsessuna og búið að bjóða íslendingunum í afmælisboð :) Það verður hörkufjör! En ég held að henni hlakki meira til að fá pakkana sem Hanna kemur með heldur en að fá Hönnu hahaha !! Það er búið að lofa prinsessunni að gera bleika prinsessuköku, þannig ég verð sveitt við bakstur á morgun ;) 
 
Trúi varla að litla barnið mitt sé að verða 3 ára gömul! En það fer ekkert fram hjá neinum að hún er að eldast, hún er komin á fyrsta stig gelgjunnar og æpir á foreldra sína gelgjuorðum og setningum eins og hún sé 11 ára ekki 3 ára!! Svo er hún auðvitað alltaf með frasa eins og "ALMÁTTUGUR MINN", "OH MY GOD", "GEÐVEIKT FLOTT" og fleira!! Ég get stundum pissað í mig af hlátri þegar hún er að brasast eitthvað og kemur með þessa dásamlegu frasa sína! 

Gulli Orri er alltaf jafn hress og við foreldrarnir horfum á barnið fitna og stækka, en hann verður einmitt 1.árs eftir rétt rúman mánuð!! Var ég ekki örugglega bara á fæðingardeildinni um daginn!! Tíminn líður alveg skuggalega hratt og við verðum farin að ferma áður en við vitum af með þessu áframhaldi! ;)
Hann er næstum alveg farin að labba, en það vantar rétt herslumuninn uppá. Tekur alveg syrpurnar hérna heima þar sem hann labbar stofuna endilanga, en svo vill hann bara skríða þess á milli. Hann er bara krútt svona á röltinu :) Ætla að taka gott video af honum og setja inná netið, en Gulli gaf mér þessa flottu video vél um daginn , þannig héðan í frá fáið þið brasið á okkur fjölskyldunni beint í æð :) 
 
Annars mæli ég eindregið með því að þið komið hingað út í heimsókn....hér er búið að vera 20 stiga hiti og sól síðustu daga, og kellan er meira að segja orðin pínu sólbrennd ;) 
Næst á dagskrá er að fara og kaupa sólbekki á svalirnar og þá er sko hægt að flatmaga af alvöru! 

Ætla líka á meðan ég man að óska Eddu Lillý innilega til hamingju með fallega nafnið sitt ! :) Til lukku með stelpuna Dagný og Birkir okkar ! 

Annars læt ég þetta duga í bili, ætla að koma litla prinsinum mínum út í vagn :) 

Hafið það gott á Íslandinu góða ! 
Frk. Einarsdóttir kveður.  
05. apríl 2009 klukkan 07:36
Hildur Einarsdóttir
2 athugasemdir
29mars

Grasekkjan talar.....

jæja best að koma með nýjan pistil svona rétt áður en mánuðurinn klárast ;) 
Af okkur er allt ágætt að frétta...erum búin að eiga erfitt með að vera ekki á klakanum síðan afi dó en það er víst ekki hægt að vera allstaðar. Hugur okkar er samt búin að vera heima hjá ömmu, mömmu og hinum í fjölskyldunni og verður það áfram. 

Annars af lífinu hérna í furstaríkinu þá er frúin orðin grasekkja enn einu sinni og í þetta sinn fram á fimmtudag, en kallinn er farinn með landsliðinu til Skotlands. Leikurinn er á miðvikudaginn og er spennan gífurleg!! Ég trúi þvi af öllu hjarta að við eigum góða möguleika í þetta skoska lið og það á vonandi eftir að sýna sig að við getum ALLT sem við ætlum okkur :) 

Lífið hérna úti er ennþá bara draumalíf....eftir síðasta pistil eru samt búnir að koma tveir snjódagar, þar sem jólasnjónum kyngdi bara niður!!! En hann fór jafn fljótt og hann kom sem betur fer og er spáin út þessa vikuna 15-20 stiga hiti og sól :) Vonum bara að hún rætist, því það verður splæst í olíu fyrir mig og vörn fyrir krakkana í vikulegu innkaupaferðinni á morgun hehe ! 

Svo er það rúsínan í pylsuendanum, en það eru ekki nema 8 dagar í að hún Hanna mín komi í heimsókn til okkar og verði hjá okkur í 10 daga!!!! :) Mikið hlakkar okkur til að knúsa Nesmundinn okkar, það verður yndislegt!!! Svo er Ási eitthvað að skoða að koma út í páskafríinu.....KOMA SVO ÁSI!!! :) 
Annars er alltaf pláss fyrir gesti á Stelzagass og nóg af sól til að deila og jafnvel fötum til að versla saman :) 

Mál málanna er samt að við hjónin erum LOKSINS búin að ákveða dagsetningu á brúðkaupið okkar og höfum við bókað 26.desember fyrir herlegheitin :) Þannig það er eins gott að allir okkar vinir taki þann dag frá á dagatalinu sínu!!! 
Engin jólaboð þetta árið, við göngum fyrir ;) hehe 

Erum samt hæstánægð með að vera loksins búin að taka ákvörðun með dagsetningu en þetta er búið að vefjast fyrir okkur í þessi rúmu tvö ár sem við höfum verið trúlofuð :) Við erum samt búin að vera saman í 7 ár í ágúst.....7ár!!! já það er sko aldeilis fínn árangur, en þó bara byrjunin á ævilöngu sambandi, það erum við alveg viss um!! :) 

Helgin er búin að vera hin skemmtilegasta, en við fórum á laugardaginn í dýragarðinn í Zurich í HELLIRIGNINGU!! Keyrðum úr sól í þetta líka úrhelli, en þar sem Ester Ósk var að kafna úr spenningi yfir að hitta dýrin þá var ekki aftur snúið :) 
Hún var ekkert smá ánægð með þessa ferð og fannst svona líka merkilegt að hitta nashyrning, zebrahesta, krókódíl, górillur og fleiri flott dýr :) Gulli Orri var hinn rólegast yfir þessu öllu saman, enda átti hann í fullu fangi með að hrista af sér gamlar konur sem voru að klípa í kinnarnar á honum, en ég held að það hafi komið svona 6 gamlar konur BARA í dýragarðinum að kíkja á hann og dást af honum haha :) Honum leiðist nú ekki athyglin og fengu allar 6 konurnar fallegt englabros frá prinsinum!

Eftir dýragarðinn var ferðinni heitið á Radison SAS þar sem hann Gulli eldri var skilinn eftir en hann átti flug svo snemma í morgun. 

Í dag var svo klukkunni flýtt um einn tíma þannig núna erum við tveimur tímum á undan ykkur á Íslandi. Frekar skrítið að vakna kl.8, en samt kl.9 og vera þannig búin að tapa klukkutíma af deginum.....fannst þetta furðulegt í allan dag.
En ég dreif mig í leikjalandið góða með krakkana í dag ásamt Stebba, Magneu og co, og Gumma, Pálu og co :) Það var svaka stuð eins og venjulega!! Ester Ósk alveg ELSKAR þetta og má varla vera að því að koma og fá sér að borða eða drekka, það er svo brjálað að gera hjá henni í leiktækjunum!!

Ég verð bara að segja ykkur aðeins frá Ester Ósk en hún er orðin svo fyndinn krakki að ég á stundum erfitt með að springa ekki úr hlátri framan í hana þegar hún er að spá og spekulera í hlutunum!! Eins og núna þá er hún með Línu Langsokk æði......verður að vera með tvær fléttur í hárinu eins og Lína á hverjum degi og dreymir um að eignast apa eins og herra Níels, enda spurði hún í dýragarðinum hvort hún mætti eiga einn svona apa til að hafa heima hjá okkur....hehe. Svo um daginn þá var hún að spá í því að pabbi hennar Línu væri sjómaður og ég sagði henni að Lalli frændi væri líka sjómaður alveg eins og pabbi hennar Línu......þá varð mín pínu hugsi og sagði svo ....en mamma, Fanney frænka er sko líka sjómaður!! Ég varð nottla steinhissa á þessu hjá henni og spurði nú er það? .....já mín hélt það nú.....hún sagði að Fanney frænka væri alltaf að fara í stóra skipið !! Hún var meira að segja pínu hneyksluð á móður sinni að vita ekki að Fanney væri sko sjómaður....en Fanney á heima í Eyjum og fer því reglulega í Herjólf og mín hefur lagt það á minnið að Fanney sé alltaf í skipinu og fannst því bara sjálfsagt að Fanney væri jú sjómaður! :) hehe.
Varið ykkur því þetta barn er með límheila og ef þið segið eitthvað við hana, þá man hún það alveg ótrúlega lengi !! Er alltaf jafn hissa á commentunum sem hún kemur með oft. :) Getur verið hættulegt að lofa henni einhverju og standa ekki við það ;) 

Við höfum ekkert verið að neyða Ester til að tala þýsk orð hérna úti, en höfum þó sagt henni að svona segi maður halló, takk fyrir og bless og svona. Hún hefur ekkert viljað nota þýskuna við fólk út á götu en í dag heyrði ég hana allt í einu segja danke sjön við Gulla Orra þegar hann rétti henni boltann sem hún var að biðja um :) Það var bara krúttlegt og vonandi fer hún að þora að nota þetta við aðra líka. 

Ég ætla samt að láta þetta blaður mitt duga í bili, er alveg búin á því enda er kl.orðin korter í 12, eða korter í 11.....og það er heldur seint fyrir grasekkju með fulla dagskrá daginn eftir ;) hehe. 

Skelli inn myndum á morgun, hef ekki orku í það núna. 

1000 kossar og góða nótt! :*

 
29. mars 2009 klukkan 21:48
Hildur Einarsdóttir
2 athugasemdir
18mars

í sól og sumaryl...

Ef ég væri þið þá myndi ég drífa mig á icelandair.is og bóka mig með flugi út til okkar, það er búið að vera sól og sumar veður núna nokkra daga í röð....greinilegt að sumarið er handan við hornið :) Hver er ekki til í smá sól þegar það er búið að vera óveður heima á Íslandi.....nei maður spyr sig ;) 

Annars er allt flott að frétta af okkur. Fengum íslendingafélagið "Vinir Róberts" í heimsókn á mánudagskvöldið í bjór og spil :) Það var FÁRÁNLEGA gaman og verður klárlega endurtekið sem fyrst aftur! Eins og þið takið eftir þá skiptir það okkur engu máli hvort um sé að ræða mánudagskvöld eða laugardagskvöld, enda eru ALLIR dagar eins hérna hjá okkur :) Ég veit aldrei hvaða dagur er í dag....þarf alltaf að tékka í símanum hehe.
Svo í gær fórum við með Stebba, Magneu og börnum í innileikjaland sem við erum búin að finna hérna í 30 mín fjarlægð. Það er svona eins og ævintýralandið í smáralind, nema bara MIKLU stærra. Svo eru föreldrarnir bara með, eða við sitjum og fáum okkur kaffi og svona á meðan börnin leika í tækjunum :) Ekkert smá þægilegt! Ester Ósk alveg ELSKAR þetta!

Lífið gengur annars sinn vanagang bara......erum alltaf að fíla það betur og betur að vera hérna og getum vel hugsað okkur að vera hérna lengur, en það kemur allt í ljós :)
Erfiðast við þetta er samt auðvitað að vera svona langt í burtu frá ykkur öllum og sérstaklega þegar erfiðleikar steðja að eins og núna, en við verðum bara að vera dugleg og hugsa fallegar hugsanir til afa. Veit að mamma og systkynin hennar hugsa svo vel um hann og ömmu.
Maður verður að vera duglegur að minna sig á hvað maður hefur það gott og njóta hverrar mínutu sem maður á, það skiptir öllu máli að líða vel og njóta þess að vera til. 
Ég er einmitt svo heppin að vera yfir mig ástfangin af honum Gulla mínum og gæti ekki hugsað mér betri mann! Svo á ég yndisleg börn sem kenna mér eitthvað nýtt á hverjum degi. Við erum öll ofboðslega ánægð með lífið og þannig á það að vera alltaf :) 

En jæja nú ætla ég að fara að púsla með skottunni minni. Hún bíður þolinmóð eftir að móðir sín hætti þessu blaðri á veraldarvefnum, tilbúin með nýja bangsímonpúslið sitt :) Ég fæ alltaf það skemmtilega hlutverk að snúa við púslunum á meðan hún setur það saman ;) 


Hafið það gott á klakanum, ég ætla að njóta sólarinnar í botn ;) 
1000 kossar :*
  

18. mars 2009 klukkan 09:48
Hildur Einarsdóttir
7 athugasemdir
12mars

Days of our lifes ....

jæja.....LOKSINS :) Nú fyrst byrjar fjörið...við erum flutt inn í frábæra íbúð hér á Stelzagass 17, 9487 Gamprin, Liechtenstein og okkur líkar ekkert smá vel við þetta nýja líf okkar!! Íbúðin til að byrja með er FRÁBÆR....þetta er algjör lúxus íbúð, alveg glæný og erum við fjöllan fyrstu leigjendurnir þannig þið getið ímyndað ykkur hvað okkur líður vel með þetta :) Íbúðin er 150 fm og með 3 svefnherbergjum, og 3 klósettum....já nánast eitt á mann :) haha. Aðeins rúmbetri en hótelherbergin sem við vorum búin að vera á í tvær vikur áður en við fluttum inn.......ég var gjörsamlega að tapa geðheilsunni, enda fátt leiðinlegra en að búa í 12 ferðatöskum inná litlu hótelherbergi með tvö lítil börn. En við komumst yfir það áfallalaust og erum ofboðslega sátt við að vera nýjustu íbúar bæjarins Gamprin :) Gamprin er rétt fyrir utan Vaduz höfuðborgina, ef hægt er að kalla Vaduz borg þar að segja haha, það búa um 8000 þar :) .... EN ef við segjum að Vaduz sé Kópavogur, þá er Gamprin Garðabær, það er svo stutt á milli. Lichtenstein er samt allt eins og Kópavogur enda búa 35.000 manns hérna í öllu landinu :). haha þetta er það lítið! En sem betur fer er mjög stutt í allt enda erum við ekki nema 5 mín til Sviss, 10 mín til Austurríkis, hálftíma til Þýskalands og tvo tíma til Mílanó á Ítalíu, svo það er stutt í fullt af löndum hérna í kring :) Við erum búin að vera dugleg að skanna svæðið hérna í kring og ég get fullvissað þá sem eru að huga að heimsókn til okkar, að það er nóg til af verslunum hér og H&M er á hverju horni haha :) (sérstaklega fyrir þig Jóna mín ) :) Gulli er kominn í algjört toppform enda eru æfingarnar hérna ekkert grín....hahaha...hann er oft alveg búin kallgreyið eftir púl hjá þýsku stálunum sem eru að þjálfa hann. En þetta á eftir að venjast bara betur og betur með hverri æfingunni :) Svo fer vonandi að koma að því að hann fái að spila eitthvað, en markamaðurinn sem er að spila er ungur og reynslulítill markamaður sem er búin að eiga ofboðslega góða leiki (fyrir utan tvo síðustu) og á meðan hann er að standa sig er erfitt fyrir þjálfarann að skipta um keeper. Hann hafði það á Gulla að hann mátti spila fyrsta leikinn (Gulli var ekki orðinn löglegur) og þar af leiðandi hefur Gulli ekki enn fengið tækifæri til að byrja. En við höfum fulla trú á því að tækifærið fari að detta inn, og á meðan kemur Gulli sér bara í dúndur form á meðan :) Annars er lífið hérna úti algjört draumalíf!! Ég hefði ekki trúað því hversu yndislegt þetta er svona fyrirfram. Gulli æfir oft ekki nema 2-3 tíma og svo er restin af deginum bara family time :) Kemur fyrir að hann sé tvær æfingar á dag og þá er ég bara að dúlla mér með krílunum okkar, hérna heima, úti á róló eða í einhverju skemmtilegu með hinum ísl.konunum og börnum :) yndislegt alveg hreint. Svo koma auðvitað dagar þar sem þeir eru alveg í fríi og þá er fjör á bæ, enda margt skemmtilegt í boði að gera og skoða :) Erum t.d búin að finna vatnsrennibrautagarð, dýragarð, leikjaland sem er svona eins og ævintýraland í kringlunni bara 7x stærra og foreldrarnir fá að horfa á eða leika með, svaka gaman :) Svo er fullt af leiksvæðum hérna út um allt, svo það er nóg að gera hjá okkur....! Ég er einmitt í því hlutverki að vera að leika með börnunum mínum allan daginn og sé bara um að leika í mömmó, púsla, leira og lita :) Það er bara gaman og yndislegt! Ester Ósk fer svo að öllum líkindum á leikskóla hérna í ofar í götunni svona tvo - þrjá morgna í viku, bara svo hún komist í almennilegan leik með krökkum á sínum aldri :) Það verður frábært fyrir hana og henni hlakkar ekkert smá mikið til. Henni er líka alveg sama þótt önnur börn skilji hana ekki alveg og hún ekki þau.....hún bara gerir sig einhvern vegin skiljanlega með handapoti og svipbrigðum.....reddar sér eins og henni einni er lagið :) Krílin okkar eru ótrúlega dugleg að venjast öllum þessum breytingum og við sjáum líka þvílíkan mun á þeim núna eftir að við komum okkru fyrir í íbúðinni. Voru örugglega jafn fegin og foreldrarnir að komast af hótelinu ;) hehe. Þau eru komin með sitt hvort herbergið og Ester Ósk leiðst sko ekki að innrétta herbergið sitt og er hvert húsgagn útpælt alveg hreint.....t.d er rúmið blátt ..svo hún eigi ALVEG eins rúm og íþróttaálfurinn, svo eru dótakassarnir bleikir, alveg eins og Solla á líka sko. Þannig það er djúp pæling á bak við hvern hlut í herberginu hjá prímadonnunni. Gulli Orri dafnar ofboðslega vel og við gjörsamlega horfum á barnið fitna þessa dagana, en hann er farinn að borða allan mat og honum leiðist sko ekki að borða!!! Svo tók hann líka uppá því þessi elska að taka sín fyrstu skref í gær og gerði það svona líka með flottheitum.....fyrir framan alla íslendingana sem voru komnir til okkar í matarboð um kvöldið :) Hann gerði þetta með stæl strákurinn ! :) Það líður því ekki á löngu áður en hann verður kominn á röltið þessi elska. Ég held að ég sé búin að segja frá svona því helsta sem ég man eftir í augnablikinu...kl.er orðinn hálf eitt og heimavinnandi húsmóðirin er orðinn dauðþreytt.....þótt hún tími varla að hætta að pikka á fallegu nýju tölvuna sína :) En yndislegi maðurinn minn gaf mér þessa líka fallegu MacBook tölvu í afmælisgjöf og hún er svo uppfull af skemmtilegum hlutum að ég bara get ekki hætt að skoða hana hehe :) Ég ætla samt að segja stopp í bili og kem með nýjan pistil von bráðar aftur....ætlum að vera dugleg að setja inn fréttir af okkur og biðjum ykkur um að vera dugleg sömuleiðis að koma með fréttir af ykkur til okkar! Svo eru þið ávallt velkomin í heimsókn, en við erum búin að kaupa þennan líka fína gestasvefnsófa inní herbergi, sem bíður bara eftir fyrsta gestinum :) Veit að Ási, Hemmi og Ommi eru að plana ferð og þeir frá prik í kladdann fyrir það :) Þið hin takið þá til fyrirmyndar....! :) Ég set inn myndir á facebook og barnaland í fyrramálið :) 1000 kossar og knúsar frá Lichtenstein!
12. mars 2009 klukkan 23:37
Hildur Einarsdóttir
9 athugasemdir
18febrúar

KOMIN TIL LICHTENSTEIN......!

 

Jæja þá erum við konungshjónin loksins sameinuð á ný og ekki á verri stað en í hertogaríkinu Licthenstein. Við erum til að byrja með á hóteli sem er alveg LENGST uppí fjalli og útsýnið er to die for! Ég þarf eiginlega að smella mynd af því og leyfa ykkua að sjá. Þetta er svo klárlega einn fallegasti staður sem ég hef á ævinni komið á! Byggðin hérna er um allt fjall og þeir hika ekki við að byggja í bröttustu brekkunum, enda hélt ég að hún móðir mín myndi fá hjartaáfall við að keyra upp hlíðarnar hérna haha ! Ég er lofthrædd, en hún er 1000 fallt verri, hún þorir varla niður í bæ....vill helst bara vera hérna uppá hótelherbergi ;) hehe.

 

Mikið var samt gott að fá kossa og knúsa frá manninum mínum! Ester Ósk er líka búin að ljóma öll síðan hún fékk loksins að fara til pabba!! Enda engin smá pabbastelpa hér á ferð. Gulli Orri er aftur á móti ekki alveg sáttur við pabba sinn, vill bara vera hjá mömmu, afa eða ömmu......lætur pabba sinn bara heyra það. En hann verður fljótur að jafna sig á því :)

 

Flugferðinar gengu ljómandi vel og krakkarnir voru eins og englar alla leiðina. Ester Ósk hélt uppi skemmtiatriðum með Abba showi, en lög eins og mamma mía, honey...honey, Dansing Queen og lay all your love on me.....fengu að hljóma nærstöddum til mikillar ánægju, en ég held að öll vélin hafi verið farin að hlægja að barninu hehe !

 

Næst á dagskrá er bara house hunting....erum að fara að skoða eitt á föstudaginn sem á að vera flott og rúmgott, erum samt að reyna að finna meira til að skoða þangað til. Það er fólk á fullu að vinna í þessu fyrir okkur, enda vilja allir allt fyrir mann gera hérna  :)

 

Við getum eiginlega ekki beðið eftir því að komast af hóteli og inní okkar eigið hús....það verður dásamlegt að þurfa ekki að búa í ferðatöskum lengur! Við ætlum að hafa gestaherbergi í húsinu, þannig þið getið farið að bóka ykkur út í heimsókn til okkar ;) Fórum einmitt í fyrstu H&M ferðina okkar áðan og kerla var ekki lengi að strauja kortið hahahaha ! Ég gjörsamlega tapaði mér, enda ekki komist í H&M síðan ég var ólétt af Gulla Orra..Ég var líka ekki lengi að senda Jónu sms og láta hana vita að ég væri að versla á börnin í uppáhaldsbúðinni okkar ! Held að hún hljóti að vera þá þegar farinn inná icelandair.is og farin að skoða flug út ;) hehe

 

Fjallaloftið er yndislegt og við hlökkum mikið til að skoða bæinn enn betur ! Skrifum fljótt aftur og ætlum að reyna að vera dugleg að koma með fréttir.

 

Hafið það sem allra best á klakanum!! Við höfum það allavega frábært hérna í ölpunum !! :) :)

 

Chao!

 

 

18. febrúar 2009 klukkan 18:41
Hildur Einarsdóttir
10 athugasemdir
07janúar

GUUUUULLLLLLLIIIIIIIIIIII!!!!!!!!!!!!!!

Komiði nú öll sæl og blessuð.

Ég brotnaði undan gríðarlegum þrýstingi frá járnfrúnni að gera hér pistil.
Árið 2009 gengið í garð og tímabært að setja sér ný markmið sem ég er búinn að gera. Sumir mundu segja að þau væru ansi háleit en ég veit að ég næ þeim:)
Það er ekki amalegt að vita. Ég ætla samt ekki að skrifa um þau hér:)
Ég held að ég hafi náð öllum mínum markmiðum í fyrra nema það að HK féll:(Áður en lengra er haldið þá verð ég bara að segja það að þetta Pussycat Dolls fyrirbæri er eitthvað það allra sorglegasta fyrirbæri sem ég hef nokkru sinni séð)er einmitt að horfa á þessa hörmung í Jay Leno sem er nú ekki merkilegur sjálfur)vonandi eru þau samt glöð:)Takið eftir jákvæðnini:)
Eitt af markmiðum mínum í fyrra var að reyna að smita vini mína af jákvæðni og að hætta að blóta. Það gekk auðvitað misvel eins og gengur. Ég þurfti auðvitað ekki að smita Miss positive semsagt húsfreyjuna hér á bæ af jákvæðni, en hún er nánast hætt að blóta samt:) Erfiðustu viðfangsefnin voru og eru Hemmi og Hanna. Það er nú ekki eðlilegt hvað þeir óþekktarangar blóta mikið.
Ég fékk mikið af verðlaunum á síðasta ári. En ég er stoltastur samt af Heimsmeistaratitlum í Clue, Partners, Trivial, Pictionary og 10. Þeir sem hafa orðið fyrir barðinu á SuperGulla eru allnokkur t.d. Garpur , Ingunn, Ommi, Ósk, Hemmi, Freyza, Fibbó, Rut, Ási, Doddi, Hanna og auðvitað drottningin sjálf. Svo ég vitni í orð hins snjalla Hemma"Gulli er ósigrandi":) Þið megið skora á mig hvenær sem er gott fólk.
Aðrar fréttir eru þær að Hildurin mín verður fallegri og fallegri með hverjum deginum og sagði ég henni það um daginn(bara með öðrum orðum:)) Signý, Ester og Orri eru stórkostleg börn og eru bara byrjunin á krakkaskaranum hér í höll, okkur finnst við skulda heiminum að koma með fleiri svona meistarastykki.
Við fjölskyldan erum komin með aukavinnu vegna allra hljófæranna sem eru komin á heimilið en nú eigum við trommur sem Ester fékk í jólagjöf frá Hönnu, hljómborð sem hún fékk frá Agli frænda sínum, og síðan míkrafón sem fylgdi með. Fyrir eigum við gítar og bassa. Aukavinnan er semsagt sú að við komum við hvaða tilefni sem er og spilum óskalag af ykkar vali hvar sem er. Vinsamlegast skráið pantanir í comments. Hljómsveitin heitir Royal Chocolate!!!
Lifið í jákvæðni kæru vinir og fjölskylda það skilar ykkur langt:)

kv. Gulli (bassaleikari í Royal Chocolate)


07. janúar 2009 klukkan 23:44
Hildur Einarsdóttir
7 athugasemdir
09nóvember

Finally nýr pistill !!

Ok gott Hildur og Gulli.....færsla á mánaðarfresti...klöppum fyrir því ;)

En já í dag er einmitt hinn merki dagur 9.nóvember, sem þýðir að hann Gulli Orri okkar er 6.mánaða í dag...Hipp Hipp HÚRRA ! :) Hann fagnaði deginum með því að gefa sjálfum sér nýja tönn í gjöf, en hann er nú komin með tvær tennur litla skinnið!
Við hjónin áttum einmitt að vera að fara á ABBA showið í gærkvöldi, en urðum að sleppa því þar sem litli prinsinn okkar var svo slæmur af tanntöku, hann var alveg ómögulegur og þegar maður er þannig þá kemur enginn knús í stað mömmuknús :) Prinsinn gengur að sjálfsögðu fyrir þannig ABBA showið bíður bara betri tíma, engin spurning!
Við vorum "hálf" barnlaus um helgina, en Ester Ósk fór með ömmu sinni og afa uppí bústað í dekur alla helgina og það var engin pabbahelgi hjá Signýju Maríu, þannig að eftir sátum við bara með litla sjarmörinn okkar :) Hann fékk þá bara 100 % athygli í staðinn sem er bara af hinu góða.



Við héldum heljarinnar matarboð á föstudagskvöldið, en þá komu HK vinir okkar í heimsókn, en við erum í matarklúbbnum Börk og er planið að hittast reglulega og elda saman :) Það var algjört snilldarkvöld....mikið borðað, spilað, drukkið og hlegið! Gerist ekki betra en það í góðra vina hóp!
nú bíðum við bara spennt eftir jólaBörk sem verður heima hjá Rut og Finnboga.....spennandi !! :)

Annars er bara allt flott að frétta af okkur! Alltaf nóg að gera á stóru heimili, en við hjónin erum á fullu í skólanum, enda fer að styttast í próf. Ég er að elska próftöfluna okkar, en ég verð komin í jólafrí 11 des og Gulli 15.des, sem er ekki slæmt miðað við fyrri próftöflur!
Mikið hrikalega er ég samt farin að hlakka til jólanna!!! Er það alveg eðlilegt svona í byrjun nóvember.....tjjaaa veit það ekki. Mér finnst ég samt mega hlakka til, því ég missti jú af jólunum í fyrra!!! Gat ekki borðað jólamat fyrr en á annan í jólum, varð svo hrikalega veik á aðfanga og jóladag. Varð líka veik kl.4 á aðfangadag....gerist ekki verri tímasetning en það held ég!! Þannig þessi jólin er stefnan sett á að borða tvöfalt mikið til að bæta upp síðustu jól ;)


Þessi sæti jólasveinn mætti í Baugakórinn í fyrra :)

Jæja látum þetta duga í bili....nú er komin PRESSA á kallinn að koma með pistil!! KOMA SVO GULLI !!!!
09. nóvember 2008 klukkan 22:11
Hildur Einarsdóttir
5 athugasemdir
12október

fréttir úr koti

Ofboðslega er ég stolt af mínum manni :) Hann stóð sig ekkert smá vel í gær og tók sig svona líka vel út í VEL GRÆNU treyjunni sinni hahaha :) Leið og hann labbaði inná völlinn byrjaði siminn minn að pípa á fullu....allir að senda og commenta á Grænu treyjuna. Enda ekki skrítið þar sem ég er búin að vera með Gulla í rúm 6 ár og ég hef aldrei séð hann í neinu grænu! Þannig þetta var mjög sérstök stund ;)


Það var alveg hreint ólýsanlegt að horfa á þá frændur labba inn saman og standa hlið við hlið í þjóðsöngnum. Gerist ekki betra en það !! :)

Hérna er einmitt eina af þeim síðan þeir voru littlir pottormar haha (stal henni af síðunni hennar Helgu )



Nú getið þið nokkurn vegin séð hvernig Gulli Orri á eftir að líta út um 10 ára aldur ;)

Svo get ég ekki beðið eftir að fá hann aðeins heim í heimsókn í kvöld!! En hann kemur heim frá Hollandi i dag og fær að kíkja heim í smá stund í kvöld og svo beint aftur uppá hótel Nordica þar sem þeir verða fram yfir landsleikinn á miðvikudaginn gegn Makedóniu. Það hljóta allir að vera á leiðinni á þann leik ekki satt :)
Þannig ég held áfram að vera einstæð í smá tíma í viðbót. En það er bara stuð, ég á svo yndisleg börn að það er minnsta mál í heimi að vera ein með þau!

Já ég er rík kona!!
Ætla að halda áfram að horfa á Dóru the Explorer .....

kv.Hildur grasekkja ;)

12. október 2008 klukkan 09:04
Hildur Einarsdóttir
5 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit